Dregur úr ánægju með störf Dags – Fleiri óánægðir en ánægðir

Nokkuð hefur dregið úr ánægju með störf Dags B. Eggertssonar borgarstjóra samkvæmt könnun Maskínu en niðurstöður hennar voru birtar í morgun.

37,8% aðspurðra Reykvíkinga segjast nú vera ánægðir með störf Dags samanborið við 40,5% í febrúar síðastliðnum. 39,0% segjast vera óánægðir með störf hans en hlutfallið var 33,1% í febrúar síðastliðnum.

Í frétt á vef Maskínu kemur fram að meiri ánægja sé meðal Reykvíkinga en landsmanna allra með störf borgarstjóra. Þannig eru tæplega 38% íbúa Reykjavíkur ánægð með störf borgarstjóra en 39% óánægð. Þá er bent á að íbúar miðborgar og Vesturbæjar séu ánægðastir með störf Dags, eða 62% og ánægjan sé minnst austan Elliðaáa, eða tæplega 29%.

„Rösklega 28% íbúa alls landsins eru ánægð með störf borgarstjóra en 41,5% eru óánægð. Eins og fyrr sagði eru það borgarbúar sem eru ánægðastir með störf borgarstjóra en óánægðastir eru þeir sem búa utan höfuðborgarsvæðisins, en einungis um fimmtungur þeirra er ánægður með störf Dags,“ segir í fréttinni.

Þá er bent á að ánægjan aukist með auknu menntunarstigi og eru háskólamenntaðir mun ánægðari en þeir sem minni menntun hafa. Þá er mun hærra hlutfall þeirra sem eldri eru óáægðir með störf borgarstjóra. Þannig eru um helmingur þeirra sem eru 60 ára og eldri óánægð en tæplega 32% þeirra sem eru undir þrítugu, þegar skoðaðar eru tölur fyrir landið allt.

Könnunin var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóðhópur fólks (e. panel) sem dreginn er með tilviljun úr Þjóðskrá, á netinu. Alls voru svarendur 2.128 talsins af öllu landinu og 601 í Reykjavík. Svarendur eru alls staðar að af landinu og á aldrinum 18 ára og eldri.

Hér má nálgast ítarlegar niðurstöður á PDF-formi.