Guðmundur Gísli Geirdal, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, hefur dregið til baka framboð sitt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, af persónulegum ástæðum.
Guðmundur Gísli fólst eftir þriðja sæti á lista flokksins í bænum. Vísir.is fullyrðir að fleiri en einn kvenkyns bæjarfulltrúi hafi gert athugasemdir við hegðun Guðmundar Gísla.
Málið hafi verið tekið til skoðunar og sett í hendur ráðgjarfstofu. Guðmundur vill ekki svara fyrir ástæðu þess að hann dregur sig í hlé í samtali við Vísi og segir það vera af virðingu við annað fólk.
Hann segist eiga eftir ákveða hvort hann sitji út kjörtímabilið. Þá segist hann hafa velt ákvörðuninni fyrir sér í einhvern tíma.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla Sjálfstæðisflokksins hófst þann 21. febrúar og stendur til 11. mars. Kjörstaðir verða svo opnaðir á laugardaginn klukkan 10 og verður opið til klukkan 18.