Drauga­bær í boði bæjarstjórnar og Alcoa: „Þetta er allt komið á tíma og þessar búðir áttu að vera farnar“

Starfs­manna­bú­staðir 1.600 starfs­manna sem unnu að byggingu ál­versins á Reyðar­firði fyrir 17 árum grotna nú niður með til­heyrandi á­hrifum á á­sýnd og um­hverfi. Þetta kemur framí frétt Frétta­blaðsins í dag.

Alcoa Fjarða­ál ber á­byrgð á hreinsun svæðisins og hefur í­trekað endur­nýjað heimildir fyrir notkun á svæðinu og fram­lengt hreinsunar­frest í tæpa tvo ára­tugi. Alcoa Fjarða­áli, Heil­brigðis­eftir­liti Austur­lands og full­trúa bæjar­fé­lagsins ber ekki saman um hvort kvartanir hafi borist vegna málsins.

Íbúi í Fjarða­byggð tók myndir af svæðinu á þriðju­dag og þar má sjá raf­tæki á víða­vangi, brotnar rúður, 17 túbu­sjón­vörp með til­heyrandi snúrum liggjandi utan­dyra, dúka og nagla­spýtur á víð og dreif um svæðið. Að sögn í­búans liggur staðurinn við vin­sælt úti­vistar­svæði og göngu­leiðir íbúa á Reyðar­firði. Í­búinn lýsir að­komunni eins og að nú­tíma eyði­býli. Hús­næðið hafi verið sett upp í flýti og enn megi sjá rúm­stæði, dýnur, heila fata­skápa, skrif­borðs­stóla og sjón­vörp.

„Þetta eru tíma­bundnar starfs­manna­búðir sem voru settar upp þegar ál­verið var byggt. Það hefur verið sam­komu­lag milli [Fjarða­byggðar og] Alcoa sem er hand­hafi húsanna og eða réttinda sem þarna eru, um að búðirnar verði fjar­lægðar,“ segir Gunnar Jóns­son, bæjar­ritari í Fjarða­byggð, sem svarar í fjar­veru Jóns Björns Hákonar­sonar bæjar­stjóra.

Að­spurður hvort 17 ár séu ekki full­langur frestur, svarar Gunnar játandi. „Þetta er allt komið á tíma og þessar búðir áttu að vera farnar. Þetta hefur gengið hægar en við nokkurn tímann reiknuðum með.“

Hann segir bæjar­fé­lagið ekki hafa beitt sektum. „Þetta hefur verið tekið fyrir hjá okkur með reglu­bundnum hætti en þeir hafa bara endur­nýjað um­sókn sína um fram­lenginguna á stöðu­leyfi. Við höfum alltaf af­greitt það og sam­þykkt það, en alltaf sett kröfur um að það verði sett ein­hver enda­dag­setning á að þær verði fjar­lægðar. En það hefur ekki gengið eins og 17 árin bera með sér.“

Hvað um­hverfis­hliðina snertir segir Gunnar Heil­brigðis­eftir­lit Austur­lands bera á­byrgð á því eftir­liti. Spurður hvort at­huga­semdir hafi borist frá Heil­brigðis­eftir­litinu síðustu árin út af stöðunni svarar hann: „Nei, þær hafa alla vega ekki borist til mín og ég man ekki til þess að það hafi verið. Okkar hluti snýr að því að þeir fjar­lægi þetta og þeim hefur verið gefinn tími til þess, með þessum fram­lengingum.

Lára Guð­munds­dóttir, heil­brigðis­full­trúi hjá Heil­brigðis­eftir­liti Austur­lands, segir að Heil­brigðis­eftir­litinu hafi borist kvartanir. „Já. Ég man mjög vel eftir máli frá árinu sem leið þar sem var verið að kvarta undan um­gengni á lóðinni og gerð krafa um að þetta yrði hreinsað,“ segir hún.

Dag­mar Ýr Stefáns­dóttir er fjöl­miðla­full­trúi Alcoa Fjarða­áls. „Við erum með leyfi til að vera þarna á­fram og erum að greiða stöðu­leyfi af þessu.“

Spurð um van­efndir af hálfu fyrir­tækisins hvað hreinsunar­starfið varðar svarar hún: „Það varð svo­lítið flækju­stig í samningum. Það voru aðilar búnir að taka að sér að hreinsa þetta í burtu og fengu í­trekað frest til að gera það. Svo endaði það þannig að við riftum þeim samningum og tókum svæðið yfir aftur af því að þetta gekk ekki sem skyldi að koma þessu í burtu.“

Hægt er að sjá fleiri myndir og lesa um drauga­bæinn í frétt Frétta­blaðsins hér.