Dr. Gunni lýsir sinni full­komnu klám­mynd: „Byrjað á svona ríkis­ráðs­fundi, jafn­vel á Bessa­stöðum og þangað kæmi inn tví­fari Guðna“

Ný þátta­röð af Alls­konar kyn­líf fró í loftið í gær­kvöldi og fjallaði fyrsti þátturinn um kyn­örvandi miðla. Gestir þáttarins voru Ólafur Darri, Þórunn Antonía, Hug­leikur Dags­son, Dr. Gunni og Króli.

Klám var þættinum og var Tobba Marínós, sem var einnig gestur, spurð hvernig hin full­komna klám­mynd væri.

„Er orðið klám fal­legt? Það hafa allir séð myndir sem ung­lingar þar sem maður hugsar bara, vilja allir á staðnum þetta? Efni sem maður hugsar, þetta getur ekki verið eðli­legt. Ég myndi því vilja sjá efni sem væri mjög huggu­legt og rómantískt, kannski ekki endi­lega rómantískt heldur fal­legt og já­kvætt. Og kannski smá fyndið líka, mér finnst það sexý og sjarmerandi. Sumar af þessum stellingum eru bara að biðja um að þetta fari illa. Það hafa allir lent í ó­þægi­legum að­stæðum í kyn­lífi,“ sagði Tobba en Vísir greinir frá.

Dr. Gunni tók þá til máls og sagði: „Við gætum tekið ís­lensku ríkis­stjórnina og verið með tví­fara þar. Byrjað á svona ríkis­ráðs­fundi, jafn­vel á Bessa­stöðum og þangað kæmi inn tví­fari Guðna og hann myndi byrja að á­varpa hópinn,“ sagði Dr. Gunni og sprakk úr hlátri.

„Ég gæti nú alveg sætt mig við sam­göngu­ráðu­neytið en þú verður að gera eitt fyrir mig,“ bætti hann við.

Hægt er að sjá klippu úr þættinum á vef Vísisen ummæli Gunna hafa farið fyrir brjóstið á sumum og segir Þórður Pálsson forstöðurmaður fjárfestinga hjá Sjóvá Gunna að leita sér hjálpar.