Gunnar Lárus Hjálmarsson, eða Dr. Gunni eins og hann er eflaust betur þekktur, hefur nú verið dreginn inn í umræðuna um Kópasker og Raufarhöfn en líkt og Fréttablaðið greindi frá fyrr í vikunni hefur leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir úr leikhópnum Lottu fengið grófar hótanir eftir að hún lét ummæli falla um veðurfar á svæðinu um síðustu helgi.
Fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins, Jón Kaldal, deildi í færslu sinni á Twitter mynd af grein sem birtist í Fréttablaðinu árið 2006 þar sem ófögrum orðum er farið um ýmsa staði landsins. „Í nóvember 2006 fékk Dr. Gunni hóp álitsgjafa til að velja „Mestu krummaskuð Íslands“ fyrir grein í Fréttablaðinu,“ skrifar Jón og bætir við að eftir að greinin birtist hafi hann fengið ófá símtöl þar sem fólk var ósátt.
Í nóvember 2006 fékk @drgunni hóp álitsgjafa til að velja „Mestu krummaskuð Íslands“ fyrir grein í Fréttablaðinu. Birtingardaginn bárust margar innhringingar á ritstjórnina og erindið var ekki að þakka fyrir efnistökin. Á listanum eru meðal annars Garðabær og Raufarhöfn. pic.twitter.com/DI9UbU9ayM
— Jón Kaldal (@jonkaldal) July 22, 2020
„Þarna er hótelið eins og frystihús. Mig minnir að það sé gluggalaus. Komst seint á póstkort! „Bæjarbúar eru með sérmállýsku að því þeir eru svo afskekktir. Ég kom þarna einu sinni daginn eftir sjómannadaginn og í sjoppunni voru þrjár kynslóðir heimamanna, þeir voru fullir og ósofnir, eða nývaknaðir og þunnir. Að heyra þá tala var algjört hillbillí,“ segir í umsögninni um Raufarhöfn en aðrir bæir sem koma fram í greininni eru meðal annars Bolungarvík, Eyrarbakki og Garðabær.
Dr. Gunni var aftur á móti fljótur að biðjast afsökunar eftir birtingu ritstjórans og skrifaði einfaldlega; „Mjög brutal grein, sorry!“
Mjög brutal grein, sorry!
— Dr. Gunni (@drgunni) July 22, 2020