Dóttir Tobbu veiktist illa þar sem bólu­efni var búið: „Sár grátur nótt eftir nótt og hún hríð­horaðist“

At­hafna­konan og fyrrum blaða­maðurinn Tobba Marinós segir farir sínar ekki sléttar eftir að yngsta dóttir sín gat ekki fengið bólu­setningu fyrir hlaupa­bóla

„Al­menn bólu­setning við hlaupa­bólu hófst í byrjun árs 2020 og náði til barna sem fæddust árið 2019 og síðar. Eldri dóttir mín er fædd 2014 svo við hjónin keyptum sjálf bólu­efni og létum bólu­setja hana eftir á­bendingu frá vin­konu,“ skrifar Tobbaí Frétta­blaðið í dag.

„Svo liðu árin. Ronja fæddist í októ­ber 2018 og fékk því ekki „sjálf­krafa“ boð í bólu­setningu. Þegar við hjónin áttuðum okkur á því reyndum við að bóka í bólu­setningu síðasta vor en þá var ekki til bólu­efni. Það var eins og við manninn mælt – nokkrum vikum eftir að ég fór að leita að bólu­efni fékk Ronja hlaupa­bólu,“ bætir hún við.

„Að þessi bólu­setning hafi ekki verið komin inn í kerfið fyrr er ömurð. Barnið fékk um hundrað blöðrur. Undir fæturna, milli fingra, í augn­krókana, hár­svörð og nárann. Hún gat engan veginn legið vegna sára. Hún fór tvisvar á heilsu­gæsluna og endaði með sýkingu uppi á barna­spítala – ein­angruð, því hlaupa­bóla er mjög smitandi.“

„Sýkla­lyf, sár grátur nótt eftir nótt, hún hríð­horaðist og nú mörgum mánuðum seinna er hún enn með holur og ör eftir sárin.“

„Þessi veikindi tóku þrjár vikur. Sparnaðurinn fyrir kerfið við að bólu­setja ekki fyrr en 2019 er ein­hver – en hvað ætli þetta spítala­brölt okkar hafi kostað, fyrir utan sárs­aukann? Ég hef verið temmi­lega mikið með þetta á heilanum síðan og spyr því, í tíma og ó­tíma, ó­kunnuga í sundi og á róló: „Jii, hvað hún er skemmti­legt barn. Hve­nær er hún fædd? Já, 2018. Ein­mitt. Er hún bólu­sett við hlaupa­bólu?“

„Krossa svo fingur og vona að við getum sleppt sem flestum börnum við þessum and­styggi­legu og ó­þarfa veikindum,“ skrifar Tobba að lokum.