„Ég tók eftir því að dóttir mín sem var þá níu eða tíu ára fór að laumast til að taka aukanesti með sér í skólann og tók húfu og vettlinga af bróður sínum með í skólann“, segir Sigríður Rut Jónsdóttir sem er formaður Hróa hattar, barnavinafélags sem stofnað var í byrjun árs 2011.
Félagið styrkir börn frá efnaminni – eða efnalitlum heimilum um nauðsynlega hluti svo viðkomandi börn geti tekið þátt í skólastarfi líkt og önnur börn.
Þegar Sigríður Rut sá frumkvæði dóttur sinnar til að hjálpa öðrum fór hún á stúfana. „Ég fór þá að ræða þetta við kennarann hennar og þá sagði kennarinn að í skólanum væri barn sem væri aldrei með nesti og væri kalt. „Þannig að skólasystkinin höfðu tekið sig saman og að skiptast á og það vakti mig til umhugsunar af hverju og hvað ég gæti gert“, segir Sigríður Rut sem hefur styrkt fátæk börn úti í heimi en fann að hér á Íslandi var þörfin líka til að hjálpa.
„En það var engin leið til að hjálpa“, bætir hún við.
„Ég fór að orða þetta við vini mína, við erum þrjú í þessu og við fórum að kanna hvort fleiri könnuðust við þetta og það gerðu það allir“
Hópurinn fór að ræða við kennara sem könnuðust allir við börn sem bjuggu við bágborgnar að stæður. „Við töldum að kennararnir þekktu þetta vel og starfsfólk skólanna þannig að við vildum fara þar í gegn“, segir Sigríður Rut.
Stofnað var félagið Hrói höttur í kjölfarið og er það nú í samstarfi við 80 grunnskóla. Í dag hafa 1083 styrkir verið veittir.
Á vefsíðu Hróa hattar sem stofnað var í byrjun árs 2011 stendur:
Við erum EKKI stórt félag. Við komum EKKI í staðin fyrir einhver önnur úrræði á vegum ríkis eða skóla. Við sækjumst ekki eftir upplýsingum um hvaða börn hljóta aðstoð félagsins. Starfsfólk félagsins fá EKKI greitt fyrir sitt vinnuframlag. Við sættum okkur EKKI við að börn á Íslandi séu afskipt, og njóti ekki sömu lífsgæða og aðbúnaðar og þeirra bekkjafélagar.
„Við viljum alls ekki vita hvaða börn hljóta aðstoð félagsins, bara hvernig við getum hjálpað þeim.“
Heimasíða félagsins er http://hhb.is/