Dor­rit með skila­boð til kvenna: „Stelpur, ég þarf hjálp!“

Fyrr­verandi for­seta­frú Ís­land, Dor­rit Moussa­i­eff, vill að fleiri stelpur skella sér á skíði. Dor­rit hefur eytt síðustu dögum í Col­or­ado í Banda­ríkjunum en hún kvartar yfir því að vera alltaf ein með körlunum.

„Stelpur, ég þarf hjálp! Er alltaf á skíðum með körlum. Hver vill koma með?“ skrifar Dor­rit á Insta­gram síðu sinni.

Hún birtir einnig mynd af sér að sviga niður brekkuna í glæsi­legri bleikri úlpu en Dor­rit er á átt­ræðis­aldri en í góðu formi greini­lega.