Dorrit leitar að nafni á tónlistarhátíð við gosstöðvarnar – Hvað á hátíðin að heita?

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, segir að eiginkona hans, Dorrit Moussaieff, hafi stungið upp á því að halda tónlistarhátíð við eldstöðvarnar í Geldingadölum.

Ólafur Ragnar er nokkuð virkur á Twitter þar sem hann greinir frá þessu. Þar birtir hann tilkomumikla mynd af eldgosinu og segir að Dorrit hafi, á eigin Instagram-síðu, stungið upp á því að tónlistarhátíð fari fram á svæðinu og leiti nú að nafni.

Spyr Ólafur fylgjendur sína hvað hátíðin gæti heitið og segir hann að ein uppástungan hafi verið Volstock sem dregur nafn sitt af einni þekktustu tónlistarhátíð sögunnar, Woodstock.

Nokkrir hafa skrifað athugasemdir við færslu Ólafs. Einn stingur upp á nafninu Fagradals Open Fire Festival en annar stingur upp á nafninu Lavafest feat Dj Magma. Sá þriðji á þá einu ósk heitasta að sjá Mezzoforte á hátíðinni.

Ólíklegt þykir að forsetahjónunum fyrrverandi verði að ósk sinni enda líkur á að enn verði bið á því að stórar fjöldasamkomur verði leyfðar í ljósi nýrra tilfella COVID-19. Þá getur gasmengun sett strik í reikninginn og mikilvægt að fara að öllu með gát í nágrenni eldgossins.