Dorrit birti myndband af flugeldaóhappi – Nágranninn gæti þurft á nýjum bíl að halda

Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff fögnuðu áramótunum með stæl í gærkvöldi eins og margir aðrir hér á landi og um heimsbyggðina alla.

Minnstu mátti þó muna að illa færi þegar raketta sem þau skutu upp sneri skyndilega við og sprakk rétt áður en hún skall til jarðar. Dorrit birti myndbandið á Instagram-síðu sinni og hefur það vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlum.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, sést á myndbandinu og lenti rakettan ekki langt frá honum. Allir virðast þó hafa sloppið heilir frá þessu óhappi og sló Dorrit á létta strengi þegar hún sagðist sárlega þurfa á kennslu að halda um það hvernig á að skjóta upp flugeldum. Á sama tíma gæti nágranninn sárlega þurft á nýjum bíl að halda.

„In urgent need of lessons How to light #fireworks. Neighbor In urgent need of a new car,“ sagði fyrrverandi forsetafrúin.