Dóra vill að Eyþór svari: „Komist upp með að fá gefnar hundruð milljóna“

„Tæpt ár er síðan ég spurði Eyþór Arnalds hvort afskriftir Samherja hafi verið gjöf eða eftirgjöf skuldar til hans, kjörins fulltrúa, og um leið hvort hann sé í vasanum á Samherja,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, í aðsendri grein í Fréttablaðinuí dag.

Dóra skrifar þar um Eyþór Arnalds, oddvita Sjálfstæðismanna í borgarstjórn, og útgerðarrisann Samherja.

Dóra segist hafa kallað eftir því að Eyþór gerði heiðarlega grein fyrir sínu sambandi og samskiptum við Samherja. „Sérstaklega eftir að sýnt var fram á að Eyþór hafi tengsl við fyrirtæki sem Samherji notar til að múta stjórnmálafólki um allan heim. Einfaldar spurningar sem hann hefur aldrei svarað til fulls. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í stærsta sveitarfélagi landsins hefur hingað til komist upp með að fá gefnar hundruð milljóna frá Samherja.“

Dóra segir að í stað þess að svara hafi Eyþór ákveðið að draga hana fyrir forsætisnefnd vegna meintra brota á siðareglum. „Þetta er þekkt aðferð hjá Sjálfstæðisflokknum og hans bakhjörlum; að grafa undan, smætta og jaðarsetja þá sem setja þeim eðlileg mörk. Aðför Samherja að fjölmiðlafrelsinu þar sem fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan er tekinn fyrir er ágætis dæmi um aðferðirnar. Í því máli liggja þræðir beinustu leið til Valhallar.“

Dóra segir svo að síðasta útspil Samherja í leit sinni að tilfallandi afvegaleiðingu snúist um hvort gagnið sem gagnrýni fjölmiðlamannsins byggist á kallist „skýrsla“ eða „vinnuskjal“. Um sé að ræða bjánalegan útúrsnúning. Merkjum okkur að staðfest hefur verið að plaggið er til sem þýðir að upphafleg vörn Samherja um að gagnrýnin byggi á uppspuna hélt ekki vatni.“

Dóra bendir svo á að Kristján Þór Júlíusson, fyrrverandi stjórnarformaður Samherja og náinn vinur forstjóra fyrirtækisins, sé enn sjávarútvegsráðherra „þrátt fyrir að staðfest sé að hann var notaður sem leikmunur á hákarlafundi. Þorsteinn Már kynnti Kristján sem „sinn mann“ í ríkisstjórn.“

Hún endar grein sína á þeim orðum að enn sleppi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Eyþór Arnalds, við að svara fyrir himinháar upphæðir frá Samherja í gegnum Kýpurfyrirtæki sem „notað er til að múta stjórnmálamönnum“ víða um heim.

„Enn stundar fyrirtækið linnulausa áróðursherferð gegn siðferðisvitund okkar allra í stað þess að koma heiðarlega fram. Þeir standa jú alltaf saman, samherjarnir.“