Dóra sorgmædd eftir morgungönguna: „Haldið köttum ykkar innandyra“

Ófögur sjón blasti við Dóru Einarsdóttur búningahönnuði á morgungöngu hennar á Seltjarnarnesi í morgun.

Kæru nágrannar og aðrir íbúar á Seltjarnarnesi. Ég er með sorg í hjarta eftir morgungönguna. Köttur varð á vegi mínum með lítinn fugl í kjafti!,“ segir Dóra í Facebook-hópi íbúa á Seltjarnarnesi.

Nú fer varptími fugla að byrja og eru skógarþrestirnir þegar komnir til landsins. Þeir hefja yfirleitt varp í fyrri hluta maímánaðar, en gott tíðarfar að undanförnu hefur orðið til þess að margir eru búnir að koma upp hreiðrum og liggja nú á eggjum.

Kettir eru ekki mikið að spá í hag smáfuglanna og eiga þeir það til að ráðast á fugla þar sem til þeirra næst. Dóra brýnir fyrir kattareigendum að halda þeim innandyra á þessum viðkvæma tíma. Þá hvetur hún þá í það minnsta til að sýna samfélaginu þá virðingu að láta bjöllu um háls kattarins ef hún er ekki þegar til staðar.

„Ef hann rífur hana af sér eins og er svo tamt að kattareigendur afsaki sig með! Þá er sett ný !!! Kærleikskveðja og gleðilegt sumar.“