Dóra sagði vinkonu sinni frá draumi sínum rétt áður en hún fór í fimmtu meðferðina – Draumurinn rættist um áramótin

Dóra Jóhanns­dóttir, leikari, leik­stjóri og hand­rits­höfundur, fagnar því í dag að þrjú ár eru liðin síðan hún varð edrú. Dóra segir í ein­lægri færslu á Face­book-síðu sinni að enginn óski sér að vera með fíkni­sjúk­dóm og fyrir þremur árum hafi hún verið orðin mjög veik.

Dóra segir að vin­kona hennar hafi minnt hana ný­lega á eitt sem hún sagði á þessum degi fyrir þremur árum, buguð og brotin á leið í fimmtu með­ferðina. Sagði Dóra að hana dreymdi um að leik­stýra Skaupinu einn daginn. Ó­hætt er að segja að sá draumur hafi ræst og jafn­vel rúm­lega það.

„Ég veit það fyrir víst að ég hefði aldrei getað upp­fyllt þann draum ef ég hefði ekki náð að verða edrú,“ segir Dóra en Skaupið í lok síðasta árs féll sér­stak­lega vel í kramið hjá lands­mönnum og var eitt það allra besta í ára­raðir. Dóra fer svo yfir þau at­riði sem hafa hjálpað henni á þessari veg­ferð.

„Ég er í bata í dag og þetta er m.a það sem hefur hjálpað mér og vinnur allt saman: 12 spora sam­tök eru með ó­keypis stór­kost­leg prógröm fyrir alla sem díla við ein­hvers­konar fíknir eða með­virkni. SÁÁ, Vogur og Vík gerðu mikið fyrir mig og loks með­ferðin í Sví­þjóð, sem er því miður búið að loka. Eftir það fór ég í endur­hæfingu sem var mér nauð­syn­legt enda skilur neysla mann eftir með mjög laskað tauga­kerfi. Ég hef eytt for­múgu í sál­fræði­þjónustu sem er ekki á allra færi, því miður, en er nauð­syn­legt fyrir mig til að vinna úr á­föllum.“

Dóra segist í færslu sinni í dag sjá skýr tengsl milli á­falla­streitu, með­virkni, at­hyglis­brests og fíkni­sjúk­dóma.

„Lykillinn að bata mínum í dag er að fylgja inn­sæinu, biðja um hjálp, hlusta á þarfir mínar, vera með skýr mörk og sjálfs­virði sem ég set ekki í hendur annarra og nærandi tenging við annað fólk. Ég finn fyrir gríðar­legu þakk­læti og hlakka til að halda á­fram að vera edrú og fá að upp­lifa skýrt þetta fá­rán­lega fyndna, fal­lega og sorg­lega ferða­lag sem lífið er. Ég vona að ég fái að halda á­fram að vaxa og þroskast og vera í ljósi og sann­leika og geti verið til staðar fyrir aðra.“