Dóra: Klám­bann ekki að virka því ís­lenskir drengir eigi heims­metið – „Vantar ekki bara skaða­minnkandi nálgun?“

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borgar­full­trúi Pírata, blandar sér í um­ræðuna um klá­má­horf meðal ungra drengja í færslu á Twitter síðu sinni í gær. Til­efnið var um­ræða þess efnis í Silfri gær­dagsins á RÚV.

Í þættinum var settur fókus á drengi og unga menn í sam­hengi við kyn­bundið of­beldi. „Þetta er kyn­slóðin sem á að vera betri en eldri kyn­slóðir karl­manna,“ segir Einar Þor­steins­son, nýr um­sjónar­maður Silfursins. Er hann kominn í stað Fann­eyjar Birnu Jóns­dóttur, sem nokkuð fjaðra­fok var í kringum síðustu vikur hennar í starfi.

Rætt var við Maríu Rún Bjarna­dóttur, lög­fræðing hjá Ríkis­lög­reglu­stjóra, og Þórð Kristins­son, mann­fræðing og doktors­nema, í þættinum. Þau þekkja vel til þessara mála.

Dóra Björt vill skaða­minnkandi nálgun í klá­má­horfi ungra drengja: „Vantar ekki bara skaða­minnkandi nálgun á klám? 40% drengja í 8.-10. bekk horfa á klám sem er heims­met, al­gengt að það sé mjög hart jaðar­klám, skv um­fjöllun í Silfrinu. Bann gegn klámi hefur ekki virkað, þvert á móti. Við þurfum nýja upp­lýsandi og for­dóma­lausa nálgun.“

Nokkur fjöldi not­enda tekur undir með Dóru, en hátt í 130 manns líkar við færsluna. Þá svarar Sandra nokkur Jóhanns­dóttir henni og segir fræðslu vera lykil­at­riðið í þessu máli: „Fræðsla er númer 1,2 og 3. Svo held ég að það þurfi aukningu og sýni­leika á klámi sem sýnir heil­brigt kyn­líf sem ca­terar ekki bara körlum. Klám er aldrei að fara að hætta en við þurfum að breyta bæði við­horfi og í hvaða ljósi það er sýnt.“

Hans Jóns­son, fram­bjóðandi á lista Pírata í Norð­austur­kjör­dæmi fyrir síðustu Al­þingis­kosningar og trans-akvítisti, tekur undir sjónar­mið Söndru: „Fræðsla. Sér­stak­lega fræðsla og þjálfun í sam­þykki sem hefst strax á leik­skólanum. Það mun ekki nauð­syn­lega koma í veg fyrir allt klá­má­horf en það breytir nálgunum og skilningi.“