Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, virðist ekki sjá eftir neinu af því sem hún sagði á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í gær.
Dóra Björt hefur verið gagnrýnd þó nokkuð fyrir ummæli sín um Sjálfstæðisflokkinn, en flokkurinn hefur gengið nokkuð hart fram í gagnrýni sinni á fjármál borgarinnar að undanförnu. Ásreikningur Reykjavíkurborgar var einmitt til umræðu á fundinum í gær þar sem Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðismanna, beindi spjótum sínum að meirihlutanum.
Dóra Björt brást ekki vel við þessari gagnrýni og sagði í raun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins kasta steinum úr glerhúsi. Sagði hún að flokkurinn stæði fyrir sérhagsmunagæslu, spillingu og alls ekki ábyrga efnahagsstjórn. „Sjálfstæðisflokkurinn er í raun kýli á samfélaginu, hann er hreint og beint hættulegur samfélaginu,“ sagði hún meðal annars.
Óhætt er að segja að ræðan hafi fallið í misgóðan jarðveg. Sjálfstæðismenn voru eðlilega ósáttir en það voru fulltrúar annarra flokka einnig, til dæmis Kolbrún Baldursdóttir hjá Flokki fólksins sem gagnrýndi Dóru Björt fyrir „skítkast“ dauðans. Í færslu á Facebook í morgun sagði Kolbrún að hún ætlaði sér ekki að gerast sérstakur verndari borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins en það sé innbyggt í hana að koma þeim til varnar sem sparkað er í.
„Heift meirihlutans í garð borgarfulltrúa Sjálfstæðismanna í borgarstjórn birtist í myndum sem stríða langt umfram siðareglur sem meirihlutinn setti sjálfum sér.“
Dóra Björt steig fram á Pírataspjallinu á Facebook nú eftir hádegið þar sem hún bar hönd fyrir höfuð sér og virtist ekki sjá eftir neinu. Færsla Dóru er svohljóðandi:
„Nú gengur yfir bylgja í kommentakerfum og á samfélagsmiðlum þar sem ég er sögð hafa verið ofsalega óviðeigandi með orðum mínum á fundi borgarstjórnar í gær.
Það að svara og gagnrýna valdamesta flokk landsins sem hefur setið við kjötkatlana nánast samfellt frá lýðveldisstofnun nema einmitt í Reykjavík undanfarin ár - sem hamrar stanslaust á meirihlutanum í Reykjavík og elur á þeirri vitleysu að fjármál borgarinnar séu í rústi, alveg óháð árferði eða stöðu fjármálanna nota bene, til að skapa þá ímynd að þeir kunni einir með peninga að fara - er ekki óviðeigandi, það er pólitík.“