Dóra Björt óviss með framhaldið: „Þetta umhverfi er óvinveitt venjulegu fólki“

Dóra Björt Guðjónsdóttir, borgarfulltrúi Pírata, segist ekki hafa gert upp við sig hvort hún bjóði sig fram að nýju í borgarstjórn.

Dóra Björt lýsir þessu á Twitter-síðu Snæbjörns Brynjarssonar en þar hvatti Snæbjörn hana til að bjóða sig fram að nýju.

„Hún þorir að vera hörð og tala um í djóki að lykla bíla sem eyðileggja gangstéttir og hún þorir að segja upphátt þegar stjórnmálamenn þiggja mútur í formi hlutabréfa og niðurfelldra skulda,“ sagði hann meðal annars og benti á að Píratar hefðu tilhneigingu til að hætta fyrr en aðrir pólitíkusar.

Nefndi hann Helga Hrafn Gunnarsson, Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur, Birgittu Jónsdóttur og Halldór Auðar Svansson sem dæmi.

„Þetta er allt fólk sem hætti á miðri leið því þau voru meiri manneskjur en pólitíkusar. Ég vona hins vegar að Dóra Björt bjóði sig fram sem borgarstjóraefni. Það er kominn tími á ferskar raddir og hvað væri betra en foreldri nýkomið úr fæðingarorlofi.“

Dóra Björt þakkar Snæbirni fyrir falleg orð og segir:

„Ég held að þú hafir hitt naglann á höfuðið með þessu um meiri manneskjur en pólitíkusar. Þetta umhverfi er óvinveitt venjulegu fólki og það er ein ástæða þess að ég á erfitt með að ákveða mig um áframhaldið.“