Dóra Björt fær á baukinn: Sigurður segir hana ljúga blákalt

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, er allt annað en sáttur við Dóru Björt Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa Pírata, ef marka má umfjöllun í Morgunblaðinu í dag.

Þar er sagt frá því að Dóra Björt hefði sagt ósatt á borgarstjórnarfundi í gær þegar hún nefndi að borgin hefði fundað með Samtökum iðnaðarins vegna tíu milljarða króna stafrænnar umbreytingar borgarinnar. Átti fundurinn að hafa farið fram vegna fréttar í Morgunblaðinu og ákveðinn misskilning vegna hennar. Sigurður segir að enginn slíkur fundur hafi farið fram og að Dóra Björt ljúgi blákalt að sínum umbjóðendum.

„Fyrsta lygin er sú að fundur hafi átt sér stað. Í öðru lagi er logið til um efni slíks fundar og í þriðja lagi er logið til um niðurstöðu á slíkum fundi. Í því samhengi er áhugavert að hugsa til þess að fyrir viku eða tveimur óskuðum við sérstaklega eftir fundi með borgarstjóra til að ræða þessi mál. Hann hefur ekki séð sér fært að ræða við okkur um þetta mál sem snýst um 10 milljarða króna útgjöld á næstu þremur árum,“ hefur Morgunblaðið eftir Sigurði.

Á fundinum í gær var tillaga Sjálfstæðisflokks felld, en hún kvað á um að allir verkþættir í fyrirhugaðri uppbyggingu borgarinnar á stafrænum innviðum færu í útboð. Við þetta er Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, ósáttur.

„Það er ljóst að ekkert klárast á þessu kjörtímabili í þessu verkefni. Það var alveg ljóst af umræðunni, þegar kjörtímabilinu lýkur verður ekki búið að klára neitt nema að eyða peningum.“