Dóp­salar í Hamra­borg gera fólki lífið leitt: Börn allt niður í tólf ára að sprauta sig

„Hamra­borgin er örugg­lega eitt stærsta dóp­sölu­markaðs­svæði landsins,“ segir maður sem rekur fyrir­tæki í Hamra­borg í Kópa­vogi en í­búar og fyrir­tækja­eig­endur á svæðinu hafa á­hyggjur af fíkni­efna­við­skiptum sem fara fram á bíla­stæðum á svæðinu.

Frétta­blaðið fjallar um málið í dag. Rætt er við Benja­mín Magnús­son arki­tekt sem segir: „Okkur sýnist vera þarna blóm­leg við­skipti.“

Fjallað var um málið á sam­ráðs­fundi um skipu­lags­mál í Hamra­borg á dögunum en þar viðruðu fundar­menn á­hyggjur sínar af glæpa­starf­semi á svæðinu. Vildu fundar­menn að sett væri upp mynda­véla­eftir­lit í þeirri von að fæla ein­stak­linga frá því að stunda vafa­söm við­skipti á svæðinu.

Benja­mín sat um­ræddan fund og segir hann við Frétta­blaðið að vanda­málið sé ekki nýtt af nálinni. Þannig hitti hann full­trúa þá­verandi meiri­hluta bæjar­stjórnar Kópa­vogs fyrir fimm árum þar sem hann lýsti á­hyggjum sínum. Stakk hann upp á því að mynda­vélum yrði komið fyrir en síðan þá hefur ekkert gerst.

„Maður sér að það kemur einn bíll og bíður og svo kemur enn flottari bíll og það eru opnaðir gluggar og eitt­hvað gengur á milli áður en farið er hvort í sína áttina,“ segir hann um dæmi­gerð við­skipti á svæðinu.

Fyrir­tækja­eig­andinn sem vísað er til hér í byrjun fréttarinnar segist næstum dag­lega verða vitni að því að dóp­salar mæti á svæðið með um­slög fyrir við­skipta­vini. Segir hann að börn allt niður í tólf ára séu að sprauta sig í bíla­geymslum á svæðinu.

Frétt Frétta­blaðsins.