Dómsmálaráðherra hefur skotið skjólshúsi yfir tvo flóttamenn frá Úkraínu.
Atli Sigurðsson nokkur greinir frá þessu á Facebook síðu sinni í fallegri færslu. Þar lýsir Atli því hvernig hann hafi heyrt í Jóni til að fá ráð um húsnæðiskost fyrir flóttafólkið.
„Ég var í vandræðum með að hýsa þau sjálfur og hringdi því í vin minn og fyrrverandi mág, gamla björgunarsveitamanninn Jón Gunnarsson til að leita ráða varðandi húsnæði“. Því svaraði Jón „Kemur hún ekki bara til okkar til að byrja með?“