Dominos hækkar verðið á þriðjudagstilboði – „Við bara urðum að hækka“

Þriðjudagstilboð Dominos, miðstærð af pizzu með þremur áleggstegundum, hækkaði í dag í verði. Tilboðið var kynnt fyrst til sögunnar árið 2010 og hefur haldið sér í veðri allar götur síðan.

Tilboðið kostaði áður þúsund krónur en kostar eftir breytinguna 1.100 krónur.

Fréttavefur DV fjallaði um þetta og ræddi við Magnús Hafliðason, forstjóra Dominos á Íslandi, um málið. Hann segir að þetta hafi ekki verið auðveld ákvörðun.

„Nei, þetta var það náttúrulega ekki,“ segir hann og nefnir að margir staðir hafi fetað í fótspor Dominos. „Í dag eru nánast allir pizzustaðir landsins búnir að herma eftir okkur, í einu eða öðru formi. Hamborgarastaðir og kjúklingastaðir líka, þú getur farið nánast hvert sem er, jafnvel á fínni veitingastaði, og fengið þriðjudagstilboð. Það segir líka svolítið til um hvað við höfum gert til að bæta hag neytenda í gegnum árin.“

Magnús segir að Dominos hafi einfaldlega orðið að hækka, bæði vegna hækkandi verðlagsvísitölu og launavísitölu. „Á þessum tíma erum við að horfa á að verðlagsvísitalan hefur farið 40% og launavísitalan upp um 90%, eitthvað í þá áttina, og við höfum alltaf haldið okkur í þúsund kallinum. Við bara urðum að hækka núna, það er búið að vera mikið um hækkanir síðustu ár, í öllum liðum eins og þessar tvær vísitölur gefa til kynna og það á við um okkur eins og alla aðra. Svo eru auðvitað hækkanir núna af ýmsum ástæðum að fara að dynja á fyrirtækin í landinu.“