Doddi varpar sprengju: Þolir ekki snobbaðan jólamat – „Allt viðbjóður“

Útvarpsmaðurinn Þórður Helgi Þórðarson, einnig þekktur sem Doddi litli, varpaði sprengju á Twitter í gær. Jólin eru sá tími ársins þar sem margir borða mat sem þeir borða ekki dagsdaglega.

Þetta er til dæmis allskonar hnossgæti sem finna má á jólahlaðborðum og í matarpökkum sem fyrirtæki gefa starfsfólki sínu. Doddi er enginn aðdáandi, svo mikið er víst.

„Staðreynd: Mér finnst þessi snobbaði, dýri jólamatur, pate, reykt, grafið og rosa fancy unnið og lendir mjög oft í fyrirtækja jólagjöfum allt viðbjóður. Sama með dýra snobb nammið. Ég gef þetta alltaf áfram..og það er hellingur að þessu í ár. Hamburgers og Snickers frekar takk,“ segir hann.

Um þetta eru eflaust skiptar skoðanir og vafalítið tengja margir við þessi orð hans. „Hef sjaldan tengt jafn mikið við tíst. Fyrir utan Snickers partinn. Skipta Snickers út fyrir Flipper takk,“ segir einn.

Svo eru það þeir sem skilja ekkert í honum. Hannes Friðbjarnarson er til dæmis einn af þeim. „Gott að vita. Þetta heitir að vera gikkur í mínum bókum,“ segir hann. Þessu svarar Doddi af sinni alkunnu snilld:

„Snobbgikkur kannski. Það borða ekki allir gæsalifur í morgunmat eins og þú. Mér finnst þetta bara drasl og ég má það alveg.“