Hafdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lauga Spa og World Class, var gestur Jóns G. í þættinum Viðskipti á Hringbraut í gærkvöld. Hafdís, sem er oftast kölluð Dísa í World Class, veitti þar góð ráð til ungs fólks sem er að hugleiða að hefja feril í viðskiptum.
„Það er náttúrulega að hafa markmið, maður má aldrei missa sjónar á markmiðinu. Ekki láta glepjast af öllu þessu í kringum sig. Þetta er þrautseigja. Að hafa brennandi áhuga á því sem maður er að gera. Eins og hjá okkur er þetta áhugi og vinna, þetta er allan sólarhringinn,“ segir Dísa.
Hún segir að ungt fólk sem hafi hug á að stofna fyrirtæki verði að gera ráð fyrir því að því muni fylgja mikil vinna. „Þetta er mikil vinna. Við erum búin að vera síðan 1985 og mörg fyrstu árin var það alltaf þannig að það þurfti að selja þriggja mánaða kort. Svo þegar það kom rólegur tími um jólin og á sumrin voru engar tekjur. Þegar maður ætlaði að komast í frí hafði maður ekki efni á því. Svo breyttist þetta um 2004, þá fór fólk að fara í áskrift, borga mánaðarlega, þannig að tekjurnar urðu jafnari. Maður var með snöruna um hálsinn í mörg, mörg ár.“
Ansi margt vatn hefur runnið til sjávar síðan World Class var einungis ein stöð í 300 fermetra húsnæði. Nú eru stöðvarnar 15 og hugmyndin að baki þeim allt önnur en í upphafi, þegar einungis var einblínt á líkamsrækt.
„Við erum heilsurækt, líkamleg og andleg, því að það eru ekkert allir sem koma til að æfa í húsi. Sumir koma bara til að hitta fólk og meirihlutinn af tímunum fer í að tala við aðra, og það er bara frábært líka. Það er slökun, það er tengslanet, það er losun. Þetta hefur allt góð áhrif,“ segir Dísa.
Viðtalið í heild sinni má finna hér: