Diljá skýtur á Bjarna fyrir gengið í kosningum

Þingkonan Diljá Mist Einarsdóttir segir leiðinlegt að vera minnt á hvað fáir eru í þingflokki flokksins. Þetta kemur fram í Facebook færslu Diljáar og nokkuð augljóst að um skot á Bjarna Benediktsson formann flokksins er að ræða fyrir árangur flokksins í kosningum undir hans stjórn.

Diljá bregst við fréttum af því að meirihluti þingflokks Sjálfstæðisflokksins styðji Bjarna Benediktsson til áframhaldandi setu sem formaður flokksins frekar en Guðlaug Þór Þórðarson.

Athygli vekur að Diljá hafi ekki viljað gefa upp afstöðu sína við Morgunblaðið í dag þegar hún var sjálf á stuðningsmannafundi Guðlaugar í gær og er auk þess gamall aðstoðarmaður Guðlaugar Þórs.

„Alltaf jafn leiðinlegt að vera minnt á hvað við erum orðin fá í þingflokknum..“ skrifar Diljá. Hún segist hlakka til landsfundar þar sem almennir flokksmenn leggi kjörnum fulltrúum línuna en ekki öfugt.

Guðlaugur Þór hefur sjálfur gagnrýnt gengi flokksins undir stjórn Bjarna og sömuleiðis það hugarfar sem Bjarni hefur gagnvart gengi flokksins, meðal annars í síðustu sveitarstjórnarkosningum.

Sagði Guðlaugur í ræðu sinni að bréf sem sent hefði verið til flokksmanna í kjölfarið þar sem fram hefði komið að flokkurinn væri þrátt fyrir allt stærstur, hefði komið sér spánskt fyrir sjónir.

„Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að vera stærsti flokkurinn, hann á alltaf að vera langstærsti flokkurinn,“ sagði Guðlaugur í ræðu sinni í gær.