„Þetta þykja mér ekki góð skilaboð frá kirkjunni til okkar,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag.
Þar gerir hún heimsóknir skólabarna í kirkjuna á aðventunni að umtalsefni en talsvert hefur verið rætt um þær undanfarin misseri. Hún bendir á að á aðventunni fari sumir í kirkju þar sem hlustað er á boðskap trúarinnar sem við játum.
„Við erum sannarlega lánsöm að búa í þjóðfélagi þar sem kristin gildi eru samofin menningunni. Þessi boðskapur er mikilvægur fyrir alla. Og blessunarlega órjúfanlegur hluti íslenskrar sögu og menningar. Engu að síður hafa sumir söfnuðir þjóðkirkjunnar nú ákveðið að loka dyrum sínum fyrir jólaheimsóknum barna á skólatíma. Heimsóknum sem rótgróin áratuga hefð er fyrir,“ segir Diljá Mist í grein sinni.
Hún segir að börn og kennarar hafi átt notalegar samverustundir í kirkjunni, fengið piparkökur og sungið jólalög. Upplifað einstöku kyrrðina og hátíðleikann sem umvefur kirkjurnar okkar.
„Þetta gera söfnuðirnir að sögn í nafni friðar; til þess að valda ekki deilum. Til þess að friða þá sem gætu þótt heimsóknirnar óþægilegar. Þetta þykja mér ekki góð skilaboð frá kirkjunni til okkar. Hér höfum við stjórnarskrárvarða þjóðkirkju og lögbundið að starfshættir skólanna skuli mótast af kristinni arfleifð. Hún er líka samofin íslenskri sögu og menningu. Það er meginhlutverk kirkjunnar að halda grunngildum okkar á lofti.“
Diljá segir að undanfarin ár hafi verið sótt að kristinni trú og kristnu fólki um allan heim, meðal annars fyrir tilstilli borgaryfirvalda.
„En af hverju lætur kirkjan undan þessum áróðri? Og ef kirkjan bognar undan örlitlum mótgusti, eigum við safnaðarbörnin þá að halda áfram að taka til varna þegar okkur finnst að henni vegið? Er ekki auðveldara að forðast bara alla togstreitu? Ekki viljum við nú valda deilum. Við ættum ekki að láta segja okkur að það sé gestrisni kirkjunnar sem valdi deilum eða hugarangri. Að verslunarmiðstöðvar megi hafa sérstakan jólaþjónustutíma en ekki kirkjan. Við ættum frekar að bjóða fleirum að njóta aðventunnar í kirkjunni og á öllum tímum dagsins. Bjóða ekki bara börnunum að koma til okkar, heldur öllum.“