Diljá Mist hringdi en allir voru farnir fyrr heim á föstudegi

Diljá Mist Einarsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins er gáttuð og segist ekki eiga orð yfir því að starfsfólk umhverfis-og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar hættir í vinnu kl. 12:00 á föstudögum.

„Ég var rétt í þessu að ljúka símtali við þjónustuborð Reykjavíkurborgar. Þangað hafði ég samband vegna klúðurs við lokanir og merkingar vegna framkvæmda við Þúsöld í Grafarholti, þar sem fjölmargir bílstjórar keyrðu ráðvilltir um og komust ekki leiðar sinnar,“ skrifar Diljá Mist í Facebook færslu.

„Því miður gat þjónustuborðið ekki aðstoðað mig (og fjölmarga aðra sem höfðu haft samband) því starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs, sem ber ábyrgð á framkvæmdinni, hættir klukkan 12:00 á föstudögum!

Maður á ekki til orð!“