Diljá hrósar ungum sjálf­stæðis­mönnum fyrir mót­mælin við sendi­ráðið: „Vel gert“

Diljá Mist Einars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, hrósar ungum sjálf­stæðis­mönnum fyrir mót­mælin við rúss­neska sendi­ráðið.

Í gær­kvöldi hafði fjöl­mennt lög­reglu­lið af­skipti af átta ungum Sjálf­stæðis­mönnum sem hugðust mála úkraínska fánann á götuna fyrir framan rús­senska sendi­ráðið og minna þar með á stríðið í Úkraínu sem hefur staðið í hálft ár. Þar á meðal var sérsveitin við sendiráðið.

Stein­ar Ingi Kol­beins, vara­­for­maður Sam­bands ungra sjálf­­stæðis­manna, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að ætlun hópsins væri að minna á voða­verk Rússa í ná­granna­landi sínu.

Ekki náði verkið þó langt og varð að­eins einn gul­ur og ann­ar blár poll­ur á gang­­stétt­inni þar sem fjöl­­mennt lið lög­­reglu stöðvaði mót­­mæl­in.

„Vel gert hjá ungum sjálf­­stæðis­­mönnum að vekja at­hygli á því að hálft ár er liðið frá inn­rás Pútíns í Úkraínu. Ég hvet alla til að mæta á mál­þing sem SUS stendur fyrir til þess að minna á Úkraínu,“ skrifar Diljá.

„Frá­­sögn þeirra af við­búnaði lög­­reglu og sér­­sveitar við rúss­neska sendi­ráðið vekur hins vegar upp spurningar um hvort um eðli­­lega vernd og verk­lag sé að ræða. Ungum sjálf­­stæðis­­mönnum tókst ekki að hafa uppi eðli­­leg mót­­mæli með því að skreyta götu við sendi­ráðið með úkraínsku fána­litunum þar sem lög­regla stöðvaði þá áður en þeir gátu svo mikið sem mundað pensil. E.t.v. taldi lög­reglan sér ekki annað fært, verandi á staðnum og með þennan líka við­búnað. Það er synd, það hefði verið sómi að fána­­skreytingunni á þessum stað,“ skrifar Diljá enn fremur.