Díana Ósk var 11 ára þegar hún bjó á götunni

Séra Díana Ósk Óskars­dóttir, sjúkra­húss­prestur á Land­spítalanum, segir ó­trú­lega sögu sína í þættinum Til­verunni á Hring­braut í kvöld klukkan 20:00.

Í við­talinu fer Díana yfir sögu sína og segir meðal annars frá reynslu sinni af 12 spora kerfinu sem hún kveðst vera mjög hlið­holl.

Til­veran er í um­sjá prestanna Sveins Val­geirs­sonar og Steinunnar Arn­þrúðar Björns­dóttur.