Landlæknirinn Alma Möller segir Delta afbrigðið vera að breytast og breyta leikreglunum í faraldrinum. Þetta er meðal þess sem fram kom á upplýsingafundi almannavarna nú fyrir skemmstu.
„Delta afbrigðið er að breytast og breytir leikreglunum í faraldrinum,“ sagði Alma. 96 manns hafa greinst smitaðir í dag.
Aðspurð að því hvort þurfi að herða enn frekar sagði Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill Þórólfs, að ekki væri tímabært að áætla hvort herða þurfi aðgerðir í ljósi smita. Þá hefur bakvarðasveit verið virkjuð.
Ísland verður appelsínugult á korti sóttvarnarstofnunar Evrópu á fimmtudag. Víðir segir óljóst hvaða, ef einhverjar afleiðingar það mun hafa.
Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, spurði hversu mikil vonbrigði það væru að þessi staða væri komin upp á landinu. Alma sagði þetta gífurleg vonbrigði en að þau væru enn sárari ef ekki hefðu svo margir farið í bólusetningu. Bólusetningin hefði ótvíræð áhrif á veikindi.
Þá spurði Björn hvort það væri aðallega ungt fólk að smitast vegna þess hve vítt og dreift það fer eða hvort að Janssen væri að klikka. Alma sagði það vera ungt fólk að smitast, alveg eins og í sumarbylgjunni í fyrra.
„Það er unga fólkið sem er mest á ferinni. Auðvitað höfum við ákveðnar áhyggjur af Janssen en samt ekki sanngjarnt að dæma það út frá þessu. Eins og ég nefndi í inngangi er minna af upplýsingum um virkni Janssen gagnvart Delta,“ segir Alma.
Kamilla segir það ekki svo fjarri lagi frá öðrum bólusetningum. Rökrétt sé að örva ónæmiskerfi þeirra sem fengu Janssen með öðrum skammti.
Alma segir markmiðið til skemmri tíma að ná tökum yfirsýn og fækka smitum. Aðgerðirnar séu ekki eins harðar og áður vegna bólusetninga.