Deilir eld­ræðu að utan sem hittir í mark: „Þessi orð gætu allt eins átt við á Ís­landi“

Davíð Þor­láks­son, fram­kvæmda­stjóri Betri sam­gangna, deilir eld­ræðu blaða­mannsins Tom Harwood en hann var gestur í um­ræðu­þættinum Qu­estion Time á BBC. Í þættinum svara sér­fræðingar, blaða­menn og stjórn­mála­menn spurningum frá á­horf­endum um hin ýmsu mál­efni.

Orku­mál í Bret­landi voru til um­ræðu þegar Harwood greip orðið og lét stjórn­mála­menn úr bæði Í­halds­flokknum og Verka­manna­flokknum í Bret­landi heyra það en orku­verð í Bret­landi hefur farið hækkandi líkt og víðs vegar í Evrópu.

„Þessi orð Tom gætu allt eins átt við á Ís­landi. Sumt fólk vill orku­­skipti og minni út­blástur kol­díoxíðs en leggst samt gegn aukinni orku­öflun, svo sem fall­­vatns­­­virkjunum og vindorku­verum,“ skrifar Davíð og deilir ræðunni.

Sjáðu mynd­bandið.