Davíð Þorláksson, lögfræðingur og framkvæmdastjóri Betri samgangna, kallar eftir því að Íslendingar fari hina svokölluðu bandarísku leið þegar óveður skella á hér á landi.
Í Bandaríkjunum tíðkast að gefa fellibyljum nöfn en þetta er gert meðal annars til að auðvelda umræðu um þá og til að draga úr líkum á misskilningi ef fleiri en einn fellibylur gerir vart við sig á sama tíma.
Davíð segir á Twitter-síðu sinni:
„Mér finnst eins og einhver hafi stungið upp á þessu áður, en þá tek ég hér með undir það: Væri ekki sniðugt að gefa djúpum lægðum, sem koma hingað, nöfn eins og fellibyljum í BNA? Auðveldar umræðu og upprifjun um þær. „Man vel eftir lægðinni Randver. Þá fauk trampólínið.“
Hugmyndin hefur fengið ágætar undirtektir og virðist Elín Björg Jónasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, ekki útiloka neitt þó hún bendi á augljósa vankanta.
„Sko. Vandræðin hefjast strax við skilgreiningu því oft fylgja ekki eiginlegar lægðir mjög slæmum veðrum. Ætla ekki að fara mjög djúpt í þetta en við erum að skoða málið :)“
Það er ljóst að öll umræða um óveður og lægðir gætu orðið skemmtilegar ef við tökum þessa hefð upp. Gunnar Þór Sigurjónsson segir til dæmis:
„Getum við þá notað gömul nöfn úr Íslendingasögunum ? Gunnar á Hlíðarenda felldi þrjár þakplötur og tugir björgunarsveita stóðu í hári hans í alla nótt!“
Mér finnst eins og einhver hafi stungið upp á þessu áður, en þá tek ég hér með undir það:
— Davíð Þorláksson (@davidthorlaks) October 1, 2021
Væri ekki sniðugt að gefa djúpum lægðum, sem koma hingað, nöfn eins og fellibyljum í BNA? Auðveldar umræðu og upprifjun um þær.
„Man vel eftir lægðinni Randver. Þá fauk trampólínið.“