Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, hefur beðist afsökunar á orðum sem höfð voru eftir honum í viðtali á mbl.is í gærkvöldi.
Davíð Þór gagnrýndi VG og Katrínu Jakobsdóttur harðlega á dögunum vegna ákvarðana ríkisstjórnarinnar í innflytjendamálum. Davíð og Katrín voru einu sinni par og í viðtalinu á mbl.is í gær var Davíð spurður hvort samband þeirra hefði eitthvað haft með ummæli hans að gera.
„Umræðan ætti að snúast um það hvernig við sem samfélag komum fram við okkar minnstu bræður og systur. Ef að einhverjum finnst að sú umræða eigi að snúast um það hvernig tilfinningalífi mínu var háttað fyrir 20 árum…jah þá vitum við hversu stór sálin í því fólki er,“ sagði Davíð Þór og bætti við:
„Þar fyrir utan þá bjó ég aldrei með forsætisráðherra Íslands, það var allt önnur manneskja.“
Davíð Þór skrifar færslu á Facebook-síðu sína í morgun þar sem hann biðst afsökunar á þessum orðum sínum.
„Mig langar að biðjast afsökunar á orðum sem höfð eru eftir mér á mbl.is. Blaðamaður hringdi í mig þar sem ég var önnum kafinn við að koma börnum mínum í háttinn. Við töluðum saman í tvær mínútur. Í lok spjallsins fékk ég spurningu sem ég taldi ekki koma málinu neitt við og lét eina vanhugsaða setningu falla í kjölfarið. Auðvitað var henni slegið upp í fyrirsögn en ekki það sem ég lagði áherslu á í okkar stutta spjalli að ætti að vera það sem málið snerist um. Ég iðrast þessara orða og tek þau hér með aftur. Umræðan á ekki að snúast um persónur, en ég lét blaðamanninn slá mig út af laginu og niður á það plan.“