Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, spyr í staksteinum blaðsins í dag hvort næst verði bólusett við kvefi.
Tilefnið er frétt Morgunblaðsins frá því í gær þar sem sagt var frá Ómíkrón-afbrigði kórónuveirunnar og að það væri að líkindum 23% vægara en Delta-afbrigðið. Þá veittu bóluefni góða vernd gegn því.
„Miðað við fyrsta afbrigði veirunnar, sem greindist í Wuhan í Kína, leiðir Ómíkron til 29% færri sjúkrahúsinnlagna, en 23% færri en Delta,“ sagði í fréttinni og tekið fram að miklu færri þyrftu að fara á gjörgæslu af völdum Ómíkrón.
„Eins smitast börn frekar af Ómíkron en fullorðnir, en einkennin eru yfirleitt væg og svipuð kvefi,“ sagaði í fréttinni sem staksteinar vitna að stóru leyti til. Staksteinahöfundur, sem gera má ráð fyrir að sé Davíð Oddsson, spyr í lokin:
„Þrátt fyrir þessa niðurstöðu og aðrar svipaðar skal í æðibunugangi þvinga í gegn bólusetningu á börnum með vísun til Ómíkron. Er ekki allt í lagi?“