„Síðustu árin hefur yfirstjórn þjóðkirkjunnar verið á undarlegu róli. Verður ekki betur séð en hún telji höfuðmarkmið sitt að koma sér út úr húsi hjá þeim sem bera enn hlýjan hug til hennar, þrátt fyrir allt,“ segir í leiðara Morgunblaðsins í dag en gera má ráð fyrir að þar haldi ritstjórinn, Davíð Oddsson, á penna.
Leiðari dagsins fjallar að hluta um auglýsingu Kirkjunnar fyrir Sunnudagaskólann en á henni má meðal annars sjá Jesú Krist með brjóst. Sitt sýnist hverjum um auglýsinguna sem vakið hefur töluverð viðbrögð. Segir í leiðaranum að smábörn, sem eru algjörlega óvarin fyrir smekkleysu, hafi nú fengið óvæntar sendingar af óboðlegu tagi.
„Sérráðinn markaðsfulltrúi kirkjunnar kom í fjölmiðla og virtist vera að segja efnislega að hinn sérstaki söfnuður á biskupsstofu hefði áttað sig á því nýverið að mannkynið skiptist í meginatriðum í tvö kyn! Þess vegna hefði verið tímabært að sýna börnunum Krist, besta bróður, sem skeggjaðan karl með brjóst og eins og í vímu. Sú mynd var þó tæpast vísun í hina sérstöku uppgötvun. Meðal annarra safnaða en hugsanlega þessa á biskupsstofu hefur Kristur frá fyrstu dögum á meðal manna verið nefndur til sögunar í helgum bókum sem sonur Guðs og það hefur hin almenna kirkja boðað næstum allar götur síðan,“ segir í leiðaranum.
Davíð varpar svo þeirri spurningu fram hverju börnin geta átt von á næst.
„En vegna hinnar nýju uppgötvunar og framgöngu í krafti hennar má spyrja hvort smábörnin, sem foreldrarnir í þjóðkirkjunni hafa fram að þessu trúað henni fyrir, megi næst eiga von á efni og myndum af Maríu guðsmóður með skegg og önnur ónefnd en afgerandi tákn um hina miklu uppgötvun?“
Hann segir að markaðsfulltrúi kirkjunnar hafi aðallega varið sig með #yfirborðslegu snakki sem er svo algengt núna“. Þá hefði biskup ráðið umræddri vegferð hún áður gengið rösklega fram í öðrum tískubólum, eins og „nýtrúarbrögðum um loftslagsmál!“
„Í refsikafla í Rómarrétti hinum forna þóttu mistök í mannavali vera sérstaklega ámælisverð. Þar efra í biskupsbúðum geta margir þakkað sínum sæla, ef þeir eru enn í einhvers konar tengslum við hann, að slík lög séu ekki lengur á bókum.“