Davíð skýtur á Ragnar Þór: „Þetta er umhugsunarvert“

„Það umboð sem Ragnar Þór Ingólfsson fékk fyrir helgi dugar honum vissulega til að leiða VR áfram, en það getur engan veginn verið réttlæting þess að beita VR í pólitískum tilgangi, jafnvel gegn sjónarmiðum stórs hluta félagsins.“

Svo segir í leiðara Morgunblaðsins í dag en leiða má líkum að því að þar haldi sjálfur Davíð Oddsson, ritstjóri blaðsins, á penna.

Eins og kunnugt er hafði Ragnar Þór betur gegn Helgu Guðrúnu Jónasdóttur, mótframbjóðanda sínum í formannskjöri VR, á dögunum. Ragnar hlaut nokkuð góða kosningu, eða 63% atkvæða.

„Formaður VR vann með nokkrum yfirburðum í formannskjöri sem lauk fyrir helgi. Þar sýndi sig enn og aftur að sitjandi formaður nýtur drjúgs forskots og að mótframbjóðandi á jafnan á brattann að sækja. En þegar betur er að gáð ættu úrslitin að vera formanninum umhugsunarefni,“ segir í leiðara Morgunblaðsins og bent á að það 36 þúsund félagar hafi verið á kjörskrá en af þeim aðeins sex þúsund kosið formanninn.

„Kosningaþátttaka var tæp 29%, sem sýnir mikið áhugaleysi félagsmanna um starfsemi félagsins. Þetta er umhugsunarvert, ekki síst í ljósi þess hve ríka tilhneigingu forysta þessa verkalýðsfélags – og hið sama á raunar við um sum önnur – hefur til að blanda sér almennt inn í þjóðmálaumræðu og pólitíska baráttu.“

Þess má geta að þrátt fyrir þetta meinta áhugaleysi félagsmanna var þátttakan í atkvæðagreiðslunni sú mesta í sögu félagsins.