Dagur B. Eggertsson gerir leiðaraskrif Morgunblaðsins að umtalsefni á Twitter síðu sinni. Þar má ætla að Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins haldi á penna.
Í leiðaranum segir meðal annars að því miður sé margt líkt með rekstri höfuðborganna tveggja. Þar segir að árið 2014 hafi verið örlagaríkt fyrir borgirnar tvær því að í París hafi sósíalistinn Anne Hidalgo tekið við og samfylkingarmaðurinn Dagur. B. Eggertsson tekið við í Reykjavík.
Segir Davíð að skuldasöfnun hafi aukist. Þá sé fleira líkt með borgunum. Gríðarleg fjölgun embættismanna. Skattpeningum sóað í vafasöm verkefni eins og Davíð kallar þau.
„Þá er kvartað undan því að París hafi orðið skítugri, ljótari og hættulegri í tíð núverandi borgarstjóra, sem skýri fólksfækkun á síðustu árum. Í tíð Dags hefur þróunin í ásýnd borgarinnar verið svipuð, en að vísu hefur ekki orðið fólksfækkun í Reykjavík. Fjölgunin er þó mun minni en annars staðar á landinu,“ skrifar Davíð.
Dagur lætur sér fátt um finnast þessa gagnrýni. „Í leiðara Morgunblaðsins í dag er Reykjavík undir minni stjórn líkt við París - í niðrandi merkingu!“ skrifar gáttaður Dagur.
„París er sögð vera orðin "skítug og ljót", einmitt. Tvær spurningar vakna helst: hvenær leiðarahöfundur kom síðast til Parísar, og hvenær hann kom síðast til Reykjavíkur?“