Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, vakti athygli á gríðarlegum atgervisflótta úr fjölmiðlum frá því að Katrín Jakobsdóttir tók við sem forsætisráðherra árið 2018. „Þetta er gríðarlegur atgervisflótti úr stétt sem hefur það hlutverk að upplýsa almenning og veita valdhöfum aðhald og er í raun mikið áhyggjuefni út af fyrir sig. Þetta segir okkur að það er ekki búið að gera nóg,“ sagði Halldóra á þingi í gær.
Höfundur staksteina Morgunblaðsins, sem er líklega Davíð Oddsson ritstjóri, var að hlusta á Halldóru og segir hana hafa farið með látalæti:
„En hvað hafa píratar gert til að styðja við fjölmiðla og reyna að stuðla að því að fleiri blaðamenn séu við störf?,“ spyr hann.
„Þeir hafa ekki svo vitað sé gert neitt í þeim efnum. Þeir hafa verið áhugasamir um að styðja litla miðla sem hafa sárafáa starfandi blaðamenn og stunda ekki almenn fréttaskrif en sinna þess í stað tilteknum hugðarefnum. Og píratar vilja veg ríkisfjölmiðilsins sem mestan og þurfa svo sem ekki að hafa áhyggjur af fækkun á þeim bænum, þar er nóg af starfsfólki enda enginn skortur á fé.“
Telur hann það skjóta skökku við að sé á ábyrgð forsætisráðherra: „Það er vægast sagt holur hljómur í yfirlýstum áhyggjum pírata af stöðu frjálsra fjölmiðla. Þær virðast þjóna þeim tilgangi einum að slá pólitískar keilur.“