„Það voru meiriháttar mistök af íslenskum yfirvöldum að hengja sig aftan í ESB þegar brýnast var að tryggja þjóðinni bóluefni sem fyrst,“ segir leiðarahöfundur Morgunblaðsins í dag. Ekki þykir ólíklegt að þar haldi sjálfur ritstjórinn, Davíð Oddsson, á penna.
Staksteinar blaðsins eru einnig lagðir undir umfjöllun um bóluefnamál við COVID-19 og seinaganginn við að semja um bóluefnakaup. Vísað er í umfjöllun á vefnum Andríki þar sem bent var á að fyrsti samningurinn um kaup á bóluefnum hafi ekki verið gerður fyrr en 15. Október og sá næsti tveimur mánuðum síðar, í desember.
Í leiðara blaðsins í dag segir davíð:
„Reynt var að bjarga málinu í horn þegar ljóst var hvernig komið var. En bóluefnaframleiðandinn sem rætt var við treysti sér ekki til samninga við Ísland, undir sérstökum formerkjum, vegna stórkostlegra vandræða sem ESB hafði komið sér í, og bar því fyrir sig ómöguleika sem fælist í smitleysi hér!“
Davíð segir að til að milda áfallið hafi verið tilkynnt um svokallað bóluefnadagatal, svo fólk geti áætlað gróflega hvenær það verður kallað inn til bólusetningar. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hafi fullyrt við mbl.is á þriðjudag að dagatalið yrði birt í gær, miðvikudag. Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, hafi aftur á móti sagt að ekki liggi fyrir hvenær bóluefnadagatalið yrði gefið út.
„Ruglandi af þessu tagi bætir ekki úr skák. Þegar horft er til árangurs landa sem ekki eru bundin á klafa ESB í bóluefnamálum og þeirra fáu þúsunda sem hafa verið bólusett hér er munurinn sláandi. Þjóðin má ekki við því að við þann dapurlega árangur bætist svo óþarfar misvísandi upplýsingar frá þeim sem best eiga að þekkja til.“