Davíð rifjar upp magnaða sögu af Guðna Th.: „Það var eins og hann hefði aldrei gert neitt annað“

„Ég vissi ekkert hvaða maður þetta var og spurði sjálfan mig í sí­fellu í fyrstu hvað væri eigin­lega málið með hann að mæta og horfa á nánast aðra hverja æfingu eða svo,“ segir Davíð Már Kristins­son, þjálfari, leikari og pistla­höfundur.

Davíð skrifaði færslu um helgina í stuðnings­hóp Guðna Th. Jóhannes­sonar, for­seta Ís­lands, en eins og kunnugt er mun Guðni berjast við Guð­mund Frank­lín Jóns­son um em­bætti for­seta í for­seta­kosningunum síðar í mánuðinum.

Færsla Davíðs vakti tals­verða at­hygli en þar segir hann skemmti­lega sögu af sam­skiptum hans og Guðna þegar Davíð þjálfaði son hans fyrir 6-7 árum síðan.

„Þetta voru 8-9 ára gamlir drengir. Æfingar voru 3x í viku, mjög snemma dags, eða um 2 leytið. Í hópnum voru um 30 drengir. Eigin­lega enginn for­eldri kom að horfa á æfingar þennan vetur. Enda æfingar frekar snemma dags og fólk í vinnu. Það var þó einn maður sem mætti að horfa á fjöl­margar æfingar allan veturinn, það var Guðni Th.,“ segir Davíð í færslunni og bætir við að hann hafi á þessum tíma ekkert vitað um manninn, enda Guðni á þessum tíma lektor í sagn­fræði við Há­skóla Ís­lands.

„Fyrir hverja og eftir hverja æfingu sem hann mætti á gaf hann sig á spjall við mig og oft ætlaði það spjall aldrei að enda. Maður þurfti ekki að vera mjög næmur á mannsálina og mikill mann­þekkjari til að sjá og skynja að þarna fór góður maður á ferð með góða sál,“ segir Davíð og bætir við að í þrjú skipti þennan vetur hafi að­stoðar­þjálfarinn af­boðað sig með skömmum fyrir­vara.

Guðni var ekki lengi að bjóða fram að­stoð sína þegar hann sá að Davíð var einn. „Tók hann frum­kvæði og gekk í hlut­verk þjálfara þarna á ör­stundu. Á­varpaði hann strax alla drengina með nafni og gaf skýrar skipanir. Það var eins og hann hefði aldrei gert neitt annað enda ekki langt að sækja þjálfunar, kennara og stjórnunar hæfi­leikana frá föður sínum heitnum Jóhannesi Sæ­munds­syni.“

Davíð segir að vonandi beri þjóðin gæfu til að kjósa Guðna til á­fram­haldandi setu á Bessa­stöðum, vonandi næstu átta árin að minnsta kosti. „Betri leið­toga þjóðarinnar gætum við ekki haft. Hann hefur allt það sem þarf til að sæma góðan for­seta og þjóðar­leið­toga.“