„Ríkisútvarpið er nýkomið með nýjan þjónustusamning sem gildir út árið 2023 og hyggst af því tilefni halda áfram að brjóta lög um hlutleysi í fréttaumfjöllun,“ segir í staksteinum Morgunblaðsins í dag.
Ekki þykir ósennilegt að þar haldi Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, á penna.
Í staksteinum dagsins er RÚV gagnrýnt einu sinni sem oftar og því velt upp hvort stofnunin sé ekki hlutlaus í fréttaflutningi sínum.
„Þegar sóttvarnayfirvöld með heilbrigðisráðherra í broddi fylkingar tóku við bóluefnum í fyrradag með ræðuhöldum og fjölmenni sem var langt yfir sóttvarnamörkum gerði Rúv. enga kröfu um afsögn nokkurs manns og gerði yfirleitt ekkert mál úr þessu samkvæmi. Og þó að heilbrigðisráðherra stæði grímulaus í fjölmenninu og ræddi við fjölmiðla var ekkert fundið að því og ráðherrann ekki spurður ítrekað út í afsögn.“
Þá er sagt frá öðru dæmi frá Seyðisfirði þegar Katrín Jakobsdóttir faðmaði sorgmædda Seyðfirðinga vegna hamfaranna sem þar riðu yfir rétt fyrir jól. Þá hafi RÚV ekki gert neina kröfu um afsögn.
„Rúv. frétti ekki einu sinni af þessum málum. Og þetta voru svo sem ekki stórmál, bara tvö dæmi um yfirsjónir og hvorug afsagnarsök. En ef Rúv. héldi í heiðri lög sem um það gilda og kveða á um hlutleysi verður ekki séð hvernig þessi ríkisstofnun gæti komist hjá því að ræða afsögn við þessa tvo ráðherra. Og það ítrekað. En þessir ráðherrar eru að vísu í vinstri grænum. Væru þeir í öðrum hvorum hinna stjórnarflokkanna þarf ekki að efast um hvernig tekið yrði á þessum augljósu brotum. Og því miður bendir ekkert til að þessi tvískinningur stofnunarinnar sé á undanhaldi, nema síður sé.“