Davíð: Ó­breytt á­stand stærsta fréttin – „Á­gætt að hafa þetta í huga næst“

„Í raun er ó­­breytt á­­stand stærstu fréttirnar,“ segir Davíð Þor­láks­son, for­stöðu­maður sam­keppnis­hæfnis­sviðs Sam­taka at­vinnu­lífsins, í bak­þönkum Frétta­blaðsins í dag.

Til­efni pistilsins er að í þessum mánuði var eitt ár liðið síðan þriðji orku­pakkinn var sam­þykktur. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá en Davíð bendir á að fyrir rúmu ári hafi sumir talað um eins og hér væru á ferðinni ein mestu af­glöð síðari tíma. Skoðar Davíð af því til­efni hvað hefur breyst á því ári sem liðið er.

„Það er skemmst frá því að segja að ná­­kvæm­­lega eins og ríkið, megin­­þorri sér­­­fræðinga og hags­muna­­sam­tök í at­vinnu­lífinu héldu fram þá hefur lítið sem ekkert breyst. Raf­­orku­verð hefur ekki rokið upp og Evrópu­­sam­bandið er ekki byrjað að undir­­búa lagningu sæ­­strengs hingað til lands þvert gegn vilja heima­manna,“ segir Davíð og bætir við að ó­breytt á­stand sé stærsta fréttin.

„Með því að inn­­leiða pakkann upp­­­fylltum við þjóð­réttar­­legar skuld­­bindingar okkar og stóðum vörð um stöðu okkar á Evrópska efna­hags­­svæðinu. EES er mikil­­vægasta sam­­starf sem við eigum aðild að. Með að­­gangi að innri markaði Evrópu bætum við lífs­­kjör allra lands­manna. Það hefur fært okkur marg­vís­­legt við­­skipta­­frelsi á ýmsum sviðum.“

Davíð segir að einnig sé mikil­vægt að orku­mál verði á­fram hluti af EES-sam­­starfinu. Í því sam­bandi megi til dæmis benda á hve ná­­tengd orku­­mál eru lofts­lags­­málum. Það blasi við að engin ein þjóð muni leysa þau og fyrir Ís­­lendinga sé nær­tækast að vinna sem mest að lausn lofts­lags­vandans á vett­vangi EES.

„Það er á­­gætt að hafa þetta í huga næst þegar fólk reynir að beita brögðum eins og þjóð­rembu og hrak­­spám til að sporna gegn frjálsum við­­skiptum og al­­þjóð­­legu sam­­starfi. Sem betur fer rætast þær aldrei. Við erum alltaf betur sett með frjálsum við­­skiptum og al­­þjóð­­legu sam­­starfi.“