Leiðarahöfundi Morgunblaðsins, þar sem leiða má líkum að því að Davíð Oddsson haldi á penna, þykir ekki leiðinlegt að skjóta á Ríkisútvarpið og lætur hann ekki sitt eftir liggja í dag.
„Ríkisútvarpið, sem nýtur margra milljarða af skattfé og tekur sér að auki tvo til þrjá af auglýsingamarkaðnum, hefur nú bætt við nýrri fjáröflunarleið. Um helgina hélt Ríkisútvarpið söngvakeppni, undanúrslit raunar, og aflaði í leiðinni fjár með því að selja atkvæði. En af því að þetta er Ríkisútvarpið, sérstaklega í almannaþágu umfram aðrar stofnanir ríkisins, þá var það ekki að selja atkvæði, heldur „votes“, eins og það hét í smáforritinu sem Ríkisútvarpið hafði látið útbúa fyrir atkvæðasöluna. Og ekki er nóg með að Ríkisútvarpið hafi selt „votes“, heldur var gjaldmiðillinn auðvitað bandaríkjadalur til samræmis,“ segir í leiðara blaðsins í dag.
Morgunblaðið greindi einmitt frá því í gær að nýtt smáforrit RÚV hafi litið dagsins ljós á laugardag. Vakti það einmitt athygli að talað var um „votes“ í appinu en ekki „atkvæði“ og þá var ekki rukkað í krónum heldur dollurum. Leiðarahöfundur Morgunblaðsins er ekki ánægður með þetta.
„Hér á landi er lögeyrir íslensk króna og ætla mætti að Ríkisútvarpið með þann uppgefna tilgang ekki síst að viðhalda því sem íslenskt er, nema það hafi breyst svo lítið bæri á, getur vitaskuld ekki leyft sér svona lagað. Ríkisútvarpið hlýtur að verða að gæta þess að nota íslensku og þó að enginn hafi hingað til haft hugmyndaflug til að krefjast þess að stofnunin notaði íslensku krónuna, þá er það nokkuð sem þarf ekki að taka fram. Stjórnendur Ríkisútvarpsins virðast sáttir við þetta fyrirkomulag og sjálfsagt mun stofnunin halda sig við það, enda starfar hún iðulega utan lagaheimilda og innanhúss virðist samdóma álit að vel fari á því. Utanhúss, einkum meðal þeirra sem endanlega ábyrgð bera á starfseminni og fjármögnun hennar, hlýtur þó að fara að koma að því að tekið verði í taumana.“