Davíð í klípu: Fleiri lesa Stundina en Morgun­blaðið

Í nýrri könnun frá Gallup koma fram upplýsingar um lestur fjölmiðla á landinu öllu. Einna merkilegust er sú staðreynd að fleiri lesi Stundina heldur en Morgunblaðið í hópi Reykvíkinga á aldrinum 20 til 50 ára. Lesendum Morgunblaðsins fækkar sífellt milli ára.

Í könnuninni kemur fram að alls 10,5 prósent svarenda í Reykjavík á aldrinum 20 til 50 ára segjast lesa Stundina á meðan 9,5 prósent segjast lesa Morgunblaðið. Það er af sem áður var.

Eldri kynslóðirnar sýna enn tryggð en um 40 prósent þátttakenda á aldrinum 60 til 80 sögðust lesa Morgunblaðið. Til samanburðar er Fréttablaðið með 54 prósent lestur á sama aldursbili, en rétt er að geta þess að því er dreift frítt til heimila landsins á meðan kaupa þarf áskrift að Morgunblaðinu.

Í aldurshópnum 30 til 39 ára voru aðeins 3,4 prósent svarenda með áskrift að Morgunblaðinu og svipaða sögu var að segja meðal 40 til 49 ára eða 3,3 prósent. Hins vegar var þriðjungur svarenda frá 60 til 80 ára með áskrift, sem sýnir aftur fram á tryggðina sem eldri kynslóðin sýnir Morgunblaðinu.

Ljóst er að Morgunblaðið, undir ritstjórn forsætisráðherrans fyrrverandi Davíðs Oddssonar, má muna sinn fífil fegurri.