Davíð gleymdi að vista Reykja­víkur­bréfið: „Alls­konar fólk í panikki í Há­degis­móum“

Að­dá­endur Reykja­víkur­bréfs Morgun­blaðsins urðu fyrir von­brigðum um helgina þegar þeir opnuðu Moggann. Ekkert Reykja­víkur­bréf var að finna í sunnu­dags­blaðinu en í skemmti­legum mola á síðu 11 í blaði dagsins í dag er málið út­skýrt.

„Af tækni­legum á­stæðum birtist ekkert Reykja­víkur­bréf í sunnu­dags­blaði Morgun­blaðsins. Skrifin vistuðust ekki og glötuðust og þar sem þetta kom seint í ljós var ekki unnt að gera annað en sleppa bréfinu. Á­skrif­endur eru beðnir vel­virðingar á þessu.“

Davíð Odds­son, rit­stjóri Morgun­blaðsins og fyrr­verandi for­sætis­ráð­herra, hefur jafnan haldið á penna þegar Reykja­víkur­bréfið er annars vegar þó bréfin séu ekki merkt höfundi.

Twitter-not­endur hafa skemmt sér konung­lega yfir þessum mis­tökum og hefur Sól­ey Tómas­dóttir, fyrr­verandi borgar­full­trúi, verið á­berandi.

„Ég sé að­stæðurnar ljós­lifandi fyrir mér: Alls­konar fólk í panikki í Há­degis­móum að reyna að finna út úr málunum með Davíð gargandi á kantinum, ösku­reiðan út í tölvuna fyrir að gleypa skrifin,“ segir hún og veltir fyrir sér af hverju á­stæðunni var lýst í smá­at­riðum fyrir les­endum.

„Hefði kannski bara verið nóg að segja af tækni­legum á­stæðum og biðjast vel­virðingar?“

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­maður Við­reisnar, treystir því að það komi tvö Reykja­víkur­bréf milli jóla og ný­árs.

„Fyrir ykkur sem lentuð líka í til­vistar­kreppu. Það er ekkert að óttast, bara tækni­legir erfið­leikar. Ég treysti á tvö Rvk­bréf um næstu helgi. Jafn­vel fleiri ef bæta á skaðann.“