David gekk í gildruna: Hryllilegur hatursglæpur skekur Belgíu

Lögreglan í Belgíu rannsakar nú skelfilegt morð sem framið var á 42 ára karlmanni, David Polfliet, á föstudagskvöld. Flest bendir til þess að um hatursglæp hafi verið að ræða.

Í frétt BT í Danmörku kemur fram að David hafi mælt sér mót við annan karlmann á stefnumótaforritinu Grindr sem er vinsælt með samkynhneigðra. Ætluðu mennirnir sér að hittast í almenningsgarði í borginni Beveren. Þegar þangað var komið tóku þrír ungir menn á móti David að því er virðist.

Grunur leikur á að þremenningarnir hafi ráðist á David með höggum og spörkum áður en eggvopni var beitt gegn honum. Lík hans fannst á laugardagsmorgun á bak við runna í umræddum garði.

Þrír piltar, á aldrinum 16 til 17 ára, hafa verið handteknir vegna gruns um morð en eðli málsins samkvæmt hefur málið vakið mikinn óhug í Belgíu.

Að því er fram kemur í fréttum belgískra fjölmiðla, sem BT vitnar til, hafa samskonar árásir gegn samkynhneigðum verið tilkynntar á sama svæði undanfarnar vikur. Minnst tvö dæmi hafa komið upp þar sem samkynhneigðir karlar eru lokkaðir í gildru á umræddu stefnumótaforriti og þeir svo beittir ofbeldi.

Ungu mennirnir þrír eru í haldi lögreglu og eiga yfir höfði sér ákæru fyrir morð.

Mikið hefur verið fjallað um málið í belgískum fjölmiðlum og hefur einskonar herferð á Twitter vakið athygli þar sem myllumerkin #loveislove og #homohaat hafa verið áberandi. Þá var heimavöllur belgíska knattspyrnuliðsins Gent lýstur upp með regnbogalitunum í gærkvöldi til að sýna samhug og stuðning vegna málsins.