Davíð fékk bóluefni í gær: Skýtur fast á ESB-sinna hér á landi

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og fyrrverandi forsætisráðherra, fékk bóluefni við COVID-19 í gær. Að minnsta kosti verður ekki annað sé af lestri Reykjavíkurbréfs Morgunblaðsins í dag sem byrjar svona:

„Í gær föstudag brá bréfritari, reyndar eins og byssubrenndur, sér inn í Laugardalshöll, til að fá bóluvörn frá hinu margrægða AstraZeneca skotið í vinstri upphandlegg sinn.“

Davíð er fæddur í janúar árið 1948 og er því tiltölulega nýorðinn 73 ára. Davíð lýsir reynslu sinni af bólusetningunni í smáatriðum en ekki verður betur séð en að vel hafi verið staðið að öllu í Laugardalshöllinni þar sem bólusetningin fer fram. Hann viðurkennir þó að honum hafi ekki litist á blikuna þegar „draumaland sprautunnar“ nálgaðist eins og hann orðar það:

„Það voru álíka margir bílar á beygjuljósunum norður af Suðurlandsbraut og þegar meiri háttar landsleikir í bolta við stórþjóðir verða senn flautaðir á. Og við höllina sjálfa voru, eins og þá, bílar um allt og upp um allt. Og ekki varð betur séð en löng biðröð fólks á allra besta aldri stæði utan við á leið sinni í höllina. Skotið var á að þetta væru einir 200 metrar af mannskap, allur á sama skeiði, í marsgjólu við mínus 3°.“

Röðin gekk hratt fyrir sig og segir Davíð að ekki hafi verið laust við að nokkur galsi við á meðal hinna grímuklæddu í röðinni. „Og það er skemmst frá því að segja að þetta erindi á kórónutíð var allt hið ánægjulegasta. Tíminn í röðinni var innan allra marka og jafnaldrar bréfritara úr öllum áttum glaðbeittir og vandræðalausir. Og þegar inn var komið blasti við hverjum manni að Evrópusambandið hafði hvergi fengið að koma nærri,“ segir hann í leiðara sínum sem öðrum þræði fjallar um bólusetninguna í gær. Davíð er ekki mikill aðdáandi Evrópusambandsins sem fær sinn skerf af gagnrýni eins og sést ágætlega í bréfinu.

Evrópusambandið hefur verið gagnrýnt harðlega fyrir það hvernig það stóð að öflun bóluefnis, en þjóðir eins og Bandaríkin, Bretland og Ísrael eru komin mun lengra með sínar bólusetningar en löndin sem tóku þátt í samstarfi ESB. Davíð endar bréf sitt á því að vísa í orð Frederick Forsyth, rithöfundar og fyrrverandi fulltrúa innan bresku leyniþjónustunnar, MI6.

Frederick sagði að ekki væri hægt að ímynda sér annað en að framganga ESB verði til þess að fækka enn í sísmækkandi hópi þeirra sem enn trúa því að Bretar hafi átt að halda áfram að láta sambandið fara með úrslitaráð yfir breskum hagsmunum.

„Ætla mætti að sama gilti ekki síður um fyrirbærin hér, hjá nágrönnunum í norðri, sem telja að það sé enn allra meina bót að afsala íslenskum hagsmunum til þeirra sem ekkert þekkja til þeirra og hafa minni en engan áhuga á þeim. Og eru nú að auki alsannaðir aular,“ segir Davíð í lok bréfsins.