„Margt miður geðslegt sést í stjórnmálabaráttu en fátt ef nokkuð er jafn ógeðfellt og áreiti eða jafnvel árásir á fólk á heimilum þess,“ segir í staksteinum Morgunblaðsins í dag.
Þar er vísað í pistil sem Sigurður Már Jónsson blaðamaður skrifaði á bloggsíðu sína á dögunum, en þar rakti hann og fór yfir nokkur dæmi um mótmæli við heimili stjórnmálamanna hér á landi.
Tilefnið var afhending Skiltakarlanna svokölluðu, Ólafs Sigurðssonar og Leifs Benediktssonar, á viðurkenningu sem þeir veittu Sigríði H. Andersen á dögunum. Var viðurkenningin veitt fyrir það að vera „spilltasti stjórnmálamaðurinn“ en afhendingin fór fram við heimili Sigríðar.
Sigurður nefnir fleiri dæmi, til dæmis áreiti sem Hanna Birna Kristjánsdóttir varð fyrir og ekki síst Steinunn Valdís Óskarsdóttir.
Staksteinar fjalla einmitt um mótmælin við heimili Steinunnar Valdísar, en ekki þykir ósennilegt að Davíð Oddsson, ritstjóri blaðsins, haldi þar á penna. Hann ber að minnsta kosti ábyrgð á skrifunum sem ritstjóri blaðsins. Í staksteinum er hlutur RÚV gagnrýndur harðlega en í pistli sínum kom Sigurður inn á RÚV hafi látið hafa sig í að taka þátt í áreitinu.
„Ríkisútvarpið gerði raunar meira en bara það að mæta á staðinn og taka þátt í ófögnuðinum, stofnunin vísaði fólki beinlínis á heimili fólks til að stuðla að því að rjúfa friðhelgi einkalífs, heimilis og fjölskyldu þess. Þetta framferði stofnunarinnar, sem nýtur stuðnings almennings hvort sem fólki líkar betur eða verr og er sögð gegna öryggishlutverki, hefur enn ekki verið rannsakað. Stofnunin hefur ekki heldur beðist afsökunar á þessu framferði. Ef til vill er það vegna þess að það er í raun óafsakandi. En líklega frekar vegna þess að stofnunin sér ekki nú frekar en þá nokkuð athugavert við þetta.“