Davíð fær það ó­þvegið í blaðinu sem hann rit­stýrir – „Vitinu virðist naumt skammtað“

Davíð Odds­son, rit­stjóri Morgun­blaðsins og fyrr­verandi for­sætis­ráð­herra, fær það ó­þvegið í pistli á leiðara­síðu Morgun­blaðsins í dag. Þar heldur Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylkingarinnar, á penna og gerir Stak­steina Morgun­blaðsins í gær að um­tals­efni.

Ó­hætt er að segja að Stak­steinar hafi vakið hörð við­brögð en þar var fjallað um við­brögðin vestan hafs og hér heima vegna dauða Geor­ge Floyd af völdum lög­reglu. Hring­braut fjallaði til dæmis um gagn­rýni Hall­gríms Helga­sonar rit­höfundar á skrifunum.

Í grein sinni segir Helga Vala:

„Höfundur einn, sem í­trekað ritar í Morgun­blaðið, gerist iðu­lega sekur um rök­þurrð og af­vega­leiðslu í skrifum sínum. Slík er á­sókn hans í stundar­at­hygli, enda gleymdur mörgum, að hann gerir allt sem hann getur til að kasta fram sora huga síns bara til að vekja um­ræðu og fá þá at­hygli sem hann þráir mest af öllu. Sneyptur var hann sendur í út­legð frá opin­berum störfum eftir af­glöp sín í Seðla­banka Ís­lands. En sæ­greifar, sem byggja auð sinn á sam­eigin­legum auð­lindum þjóðarinnar, réðu hann til starfa svo hann fær að rita mola er kallast Stak­steinar.“

Hefði betur spurt blaðamennina

Helga Vala snýr sé svo að skrifunum sem birtust í gær og segir að þar hafi opin­berast þekkingar­leysi höfundar á bar­áttu svarts fólks í Banda­ríkjunum.

„Vitinu virðist naumt skammtað þar sem gert er lítið úr mót­mælum þar í landi sem og á fjöl­mennum sam­stöðu­mót­mælum á Austur­velli. Höfundur skilur yfir­leitt ekki mót­mæli, og alls ekki að þau mót­mæli sem nú eiga sér stað vegna morðs lög­reglu­manns á Geor­ge Floyd snúast um annað og meira en það ein­staka morð. Höfundur hefði betur spurt ein­hverja af þeim af­bragðs­blaða­mönnum er starfa á Morgun­blaðinu svo hann yrði sér ekki til háðungar en því miður valdi hann í staðinn að ausa út fá­fræði sinni í steinum blaðsins.“

„Hans tími er löngu liðinn“

Helga Vala reynir svo að út­skýra fyrir Davíð hvers vegna dauði Geor­ge Floyd hafi vakið svona hörð við­brögð.

„Mót­mælin, og sam­stöðu­mót­mælin sem breiðast nú út um heiminn, eru vegna of­beldis, ras­isma og mis­réttis gagn­vart mörgum kyn­slóðum svartra íbúa landsins. Ræturnar liggja í marg­í­trekuðu of­beldi lög­reglunnar gagn­vart svörtu fólki í Banda­ríkjunum.“

Helga segir að Stak­steinar hafi í eina tíð verið hvöss lína flokks­eig­enda­fé­lags Sjálf­stæðis­flokksins og oft á tíðum ó­svífinn vöndur flokksins – skemmti­efni fyrir þá sem hafa gaman af pólitískum dansi, eins og Helga Vala orðar þarð.

„Í dag birtast steinarnir okkur sem aumur þráður til að dreifa þröng­sýnum, haturs­fullum og and­styggi­legum skoðunum ör­væntingar­fulls fyrr­verandi valda­manns sem neitar að sætta sig við að hans tími er löngu liðinn. Vonandi nær hann að lifa bjartari tíma en þann sem hann nú lifir. Bitur­leikinn er aldrei góður ferða­fé­lagi.“