„Ég hef aldrei upplifað svona. Klukkutíma eftir að auglýsingin birtist var komin umferð í götuna,“ segir Davíð Ólafsson, löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Borg, í Morgunblaðinu í dag.
Í blaðinu er fjallað um hækkandi verð á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu, en hækkunin frá því í janúar í fyrra og þar til í desember nam tæplega 12 prósentum. Haft er eftir Kjartani Hallgeirssyni, formanni Félags fasteignasala, að mikil eftirspurn sé eftir sérbýli og er þessi eftirspurn ekki bundin við sérstök hverfi.
Til marks um þetta segir Davíð, fasteignasali hjá Borg, að milli 140 og 150 manns hafi komið að skoða einbýlishús á opnu húsi í Hafnarfirði á dögunum. Söluverð eignarinnar var 8% yfir ásettu verði. Ef við gefum okkur að 95 milljónir króna hafi verið settar á húsið má ætla að það hafi selst á tæplega 103 milljónir króna.
„Ég hef aldrei fengið svo marga í opið hús,“ segir Davíð við Morgunblaðið og nefnir að aðeins þrjú einbýli hafi verið til sölu í Hafnarfirði í janúar.
„Það er einfaldlega skortur. Svo kemur þarna fjórða húsið til sölu á góðum stað í grónu hverfi, gamalt hús með fjórum svefnherbergjum. Við töldum ásett verð skynsamlegt en niðurstaðan varð þessi. Ég hef aldrei upplifað svona. Klukkutíma eftir að auglýsingin birtist var komin umferð í götuna,“ segir hann.