Fjölskylda Stefáns Karls Stefánssonar leikara minnist hans í dag en hann hefði orðið 46 ára gamall. Steinunn Ólína birtir fallega færslu á Facebook.
„Við ætlum að baka Betty Focker súkkulaðiköku honum til heiðurs,“ skrifar Steinunn Ólína og lætur fylgja með myndir af Stefáni við leik og störf. Leikarinn lést eins og alþjóð veit langt fyrir aldur fram í ágúst 2018 eftir langa og erfiða baráttu við krabbamein.
Steinunn kastar kveðju á fjölskyldumeðlimi og óskar þeim til hamingju með afmælisdag Stefáns. „Dauðinn er kannski óvæginn en minningarnar eru margfalt merkilegri. Ég legg til að þeir sem sakna finni á spotify, Í Túrett og Moll Cd- inn sem þeir Gísli Rúnar gerðu saman! Það er grenjandi fyndið meistaraverk,“ skrifar Steinunn Ólína.