Dapurleg sjón blasti við Unni þegar hún fór í Góða hirðinn

Unnur Guðjónsdóttir, stofnandi Kínaklúbbsins, rak upp stór augu í Góða hirðinum þann 18. júní síðastliðinn. Þar fann hún dýrgrip sem eitt sinn var í eigu föður hennar og hafði töluvert tilfinningalegt gildi.

Unnur segir frá þessu í Fréttablaðinu í dag í tilefni af 81 árs afmæli hennar.

„Oddfellowar gáfu föður mínum, Guðjóni Sigurðssyni múrarameistara, borðfánastöng með útskornum standi þegar hann varð fimmtugur árið 1960. Útskurðurinn sýnir víkingaskip, enda var gjöfin frá stúkunni Ingólfi þar sem pabbi var vel metinn félagi,“ segir Unnur í viðtalinu.

Það kom henni talsvert á óvart að rekast á borðfánastöngina í Góða hirðinum.

„Það fannst mér dapurlegt, þó ég ætli ekki að lasta það fyrirtæki. Efsti hluti stangarinnar var brotinn og fáninn farinn – en standurinn heill.“

Í viðtali Fréttablaðsins kemur fram að hún hafi sett sig í samband við skrifstofu stúkunnar Ingólfs til að kanna hvort stúkan vildi taka við stönginni aftur.

„Að sjálfsögðu var ég búin að kaupa stöngina og það er mér mikil ánægja að gefa Ingólfi hana aftur,“ segir hún meðal annars.